Flýtilyklar
Inntökuskilyrði
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi haldgóða reynslu af íþróttum og líkamsrækt og séu í góðu líkamlegu formi.
Þeir sem hafa lokið háskólaprófi eða stúdentsprófi njóta forgangs í námið. Gerð er lágmarkskrafa um 18 ára aldur og 140 fein einingar í framhaldsskóla. Þar af skulu hið minnsta 18 vera í ensku, 12 í íþróttum, 12 í stærðfræði, 6 í eðlisfræði og 6 í upplýsingatækni.
Við umsókn í ÍAK einkaþjálfun skal skila inn staðfestingu á loknu námi frá öðrum skólum, ferilskrá og persónulegu bréfi þar sem fram skal koma m.a. reynsla af íþróttum/þjálfun, framtíðarmarkmið og ástæða þess að sótt er um námið. Þeir umsækjendur sem skila inn vönduðum umsóknum eru kallaðir til viðtals í inntökuferlinu.
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni






