Flýtilyklar
Ný ÍAK kennslubók - 2011
Keilir hefur nú gefið út uppfærða útgáfu af kennslubók í vöðvafræði og þjálffræði sem kennd er við nám í ÍAK einkaþjálfun. Bókin er sérstaklega ætluð þeim sem starfa við styrktarþjálfun og/eða íþróttaþjálfun en nýtist einnig hinum almenna og fróðleiksþyrsta líkamsræktariðkanda og/eða íþróttamanni.
ÍAK Kennslubókin telur 293 blaðsíður, er mjög notendavæn og inniheldur meðal annars fjölda margar æfingar og æfingakerfi. Bókin er samantekin af tveimur kennurum við ÍAK einkaþjálfaranámið, þeim Helga Jónasi Guðfinnssyni, styrktarþjálfara og Einari Einarssyni, sjúkraþjálfara.
![]() |
Útdrættir úr ÍAK kennslubókinni © Heilsu- og uppeldisskóli Keilis, 2011 |
| Efnisyfirlit [PDF] | |
| Kafli 2: Kynning á ÍAK módelinu [PDF] | |
| Kafli 7: Grunnþjálfunarstig - Stöðugleika- og leiðréttingaþjálfun [PDF] | |
| Heimildaskrá [PDF] | |
| Verð fyrir ÍAK einkaþjálfara kr. 7.800 Verð fyrir aðra kr. 9.800 |
|
|
Pantanir skulu berast á netfangið: keilir@keilir.net en bókina má einnig kaupa á skrifstofu Keilis á skrifstofutíma. Þeir sem óska þess að fá bókina senda geta einungis greitt með kreditkorti. Sendingakostnaður kr. 1.600 bætist ofan á bókaverðið. |







