Heilsu- og uppeldisskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun - Keilir

Fagmennska og þekking ÍAK einkaþjálfaranámið er ítarlegasta einkaþjálfaranámið sem er í boði á Íslandi og hefur einkunnarorðin fagmennsku og þekkingu að

ÍAK einkaþjálfun

Fagmennska og þekking

ÍAK einkaþjálfaranámið er ítarlegasta einkaþjálfaranámið sem er í boði á Íslandi og hefur einkunnarorðin fagmennsku og þekkingu að leiðarljósi. Námið miðast við að skila nemendum tilbúnum til starfa við þjálfun og því er mikil áhersla lögð á að tengja fræðina við verklega kennslu og atvinnulífið.


Um námið

Markmiðið með náminu er að skapa framúrskarandi einkaþjálfara sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigði einstaklingsins og hæfni til að búa til einstaklingsmiðaðar þjálfunaráætlanir á sviði styrktar- og þolþjálfunar sem miða að því að hámarka árangur og lágmarka meiðsl.

Þau atriði sem aðskilja ÍAK einkaþjálfaranámið frá öðrum einkaþjálfaranámum eru:

  • Áhersla er á heilbrigði einstaklingsins, meiðslaforvarnir og uppbyggingu eftir meiðsl. Kennt er hvernig er ákjósanlegast að setja upp æfingarkerfi með meiðslaforvarnir í huga og hvernig er hægt að þjálfa einstaklinga með væg stoðkerfameiðsl. Kenndar eru fjölda margar æfingar sem eru viðeigandi við þjálfun á einstaklingum með bak-, axlar- eða hnémeiðsl.
  • Mikil áhersla er á verklega kennslu samhliða þeirri bóklegu þar sem starf einkaþjálfarans er fyrst og fremst verklegt starf. Farið er sérstaklega vel í allar æfingar og teygjur og nemendum skipt niður í hópa til að læra þær sem best.
  • Þjálfunarfræðin miðast ekki við “eitt æfingakerfi fyrir alla” heldur er nemendum kennt að greina stoðkerfi einstaklinga út frá líkamsstöðu og hreyfingu. Styrktar- og teygjuþjálfun í kjölfarið byggir á þessum greiningum til að ná hámarksárangri og lágmarka meiðsl.
  • Í ÍAK einkaþjálfaranáminu er kennd sálfræði með áherslu á æfingasálfræði sem snertir starf einkaþjálfara að stórum hluta. Farið er í markmiðssetningu, samskiptatækni, hvatningu og margt fleira því tengt.
  • Djúpt er farið í næringarfræði í ÍAK einkaþjálfaranáminu þar sem skjólstæðingar einkaþjálfara gera miklar kröfur um næringarfræðiþekkingu hjá þeim. Megin áhersla er lögð á hefðbundna næringarfræði en einnig eru fleiri fletir næringarfræðinnar kynntir í formi gestafyrirlestra.

ÍAK einkaþjálfun, ÍAK módelið, einkaþjálfun

ÍAK módelið

ÍAK módelið var hannað með þjálfunarhugmyndafræði ÍAK einkaþjálfunar að leiðarljósi; að hámarka árangur og lágmarka meiðsl. Öll þjálfun hefst á neðsta þrepinu og svo er unnið upp á kerfisbundinn hátt í átt að hámarks árangri eftir því sem styrkur eykst.


Viðurkennt og lánshæft nám

ÍAK einkaþjálfaranámið er 2ja anna langt nám. Námið er viðurkennt af Menntamálaráðuneytinu, veitir 36 einingar og er lánshæft hjá LÍN skv. reglum sjóðsins.


Fyrir hverja er námið?

ÍAK einkaþjálfaranámið er sniðið til að mæta þörfum ýmissa hópa; fólki sem vill starfa sem einkaþjálfarar, einkaþjálfurum sem vilja bæta við þekkingu sína, almenningi sem vill öðlast þekkingu á sviði þjálfunar og næringar, íþróttafólki sem vill vera meðvitað um eigip líkamlegt hreysti og íþróttafræðingum sem vilja bæta við menntun sína á sviði þjálfunar, meiðslaforvarna og uppbyggingar eftir meiðsl.

Til að koma á móts við þá sem hafa þegar menntun á sviði íþrótta og/eða heilbrigðis en vilja bæta við sig aukinni þekkingu á sviði þjálfunar verður boðið uppá stöðupróf í lífeðlisfræði, næringarfræði og vöðva- og hreyfifræði.

Skoðaðu umsagnir nemenda

Lestu viðtal við ÍAK einkaþjálfaranemana Björgvin Pál Gústavsson og Guðjón Val Sigurðsson


SÆKJA UM

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf