Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Heilsuskóli Keilis býður upp á tvær námslínur í þjálfun, auk stakra námskeiða undir leiðsögn sérfræðinga í þjálfun. ÍAK einkaþjálfun ÍAK

Námsframboð

Heilsuskóli Keilis býður upp á tvær námslínur í þjálfun, auk stakra námskeiða undir leiðsögn sérfræðinga í þjálfun.


ÍAK einkaþjálfun

ÍAK einkaþjálfaranámið er 2ja anna langt nám. Námið er viðurkennt af Menntamálaráðuneytinu, veitir 60 fein einingar og er lánshæft hjá LÍN skv. reglum sjóðsins. Markmiðið með náminu er að skapa framúrskarandi einkaþjálfara sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigði einstaklingsins og hæfni til að búa til einstaklingsmiðaðar þjálfunaráætlanir á sviði styrktar- og þolþjálfunar. 

Við mótun námsins var gerð úttekt á þeim einkaþjálfaranámum sem í boði eru auk þarfagreiningar á starfandi einkaþjálfurum. Í framhaldi af því var sett saman einkaþjálfaranám sem undirbýr þjálfara til að mæta þeim kröfum sem markaðurinn gerir til þjálfara.  

ÍAK einkaþjálfaranámið er sniðið til að mæta þörfum ýmissa hópa; fólki sem vill starfa sem einkaþjálfarar, einkaþjálfurum sem vilja bæta við þekkingu sína, almenningi sem vill auka þekkingu á sviði þjálfunar og næringar og íþróttafræðingum sem vilja bæta við menntun sína á sviði þjálfunar, meiðslaforvarna og uppbyggingar eftir meiðsl.  Til að koma á móts við þá sem hafa þegar menntun á sviði íþrótta og/eða heilbrigðis en vilja bæta við sig aukinni þekkingu á sviði þjálfunar verður boðið uppá stöðupróf í lífeðlisfræði, næringarfræði og vöðva- og hreyfifræði.


ÍAK íþróttaþjálfun er einstakt námskeið á heimsmælikvarða fyrir fagfólk í þjálfun. Námskeiðið er mjög hagnýtt og hnitmiðað og ætlað metnaðarfullum þjálfurum sem vilja sérhæfa sig í að styrktar- og ástandsþjálfa íþróttamenn á afreksstigi.

Íþróttamenn eru undir miklu æfinga- og leikjaálagi og miklar kröfur eru gerðar til þeirra. Markviss og einstaklingsmiðuð styrktar- og ástandsþjálfun er mjög mikilvægur þáttur í öllum íþróttagreinum, bæði til að ná auknum árangri og draga úr hættu á meiðslum. Íþróttamaður sem er vel og rétt þjálfaður er mun líklegri til að komast hjá meiðslum og nýtist liði sínu því mun betur.

Námskeiðið er skipulagt í samstarfi við íþróttafræðiskor Háskóla Íslands og sett upp sem þverfaglegt endurmenntunarnámskeið fyrir fagfólk með grunn í íþróttafræði, sjúkraþjálfun eða ÍAK einkaþjálfun og vill sérhæfa sig í styrktar- og ástandsþjálfun íþróttamanna. 


Keilir kappkostar við að bjóða uppá fjölbreytt stök námskeið fyrir þá sem veita ráðleggingar á sviði þjálfunar og næringar. Námskeiðin eru ýmist kennd af kennurum við ÍAK eða öðrum erlendum sem og íslenskum sérfræðingum. Erlendir kennarar hafa verið Michael Boyle, Lee Taft, dr. Chris Mohr, David Jack, Nick Tumminello og Eric Cressey.

Meðal stakra námskeiða sem kennd hafa verið eru:

  • Þjálfarabúðir september 2010
  • Þjálfarabúðir febrúar 2011
  • Þjálfun aldraðra
  • Þjálfun barnshafandi kvenna og nýbakaðra mæðra
  • Hámarksnýting æfinga
  • Ólympískar lyftingar
  • Styrktarþjálfun unglinga
  • Uppbygging æfingakerfa
  • Hraðaþjálfun
  • Kviðæfingar
  • Forvarnir í styrktarþjálfun
  • Þjálfun íþróttamanna eftir meiðsl
  • Hættu að skokka og byrjaðu að hlaupa
  • Jóga fyrir leikskólabörn
  • Íþróttaleikir fyrir leikskólabörn
  • Sundleikir
  • Æfingakerfi með áherslu á fitubrennslu
  • Æfingar á æfingabolta
  • Liðleikaþjálfun
  • Íþróttaleikir fyrir skólakrakka

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf