Flýtilyklar
Heilsu- og uppeldisskóli
Heilsu- og uppeldisskóli Keilis er einn fjögurra skóla Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Í heilsu- og
uppeldisskóla Keilis er boðið upp á fjölbreytt nám á sviði heilsu, heilbrigðis, íþrótta- og
uppeldisfræða. Námslínur sem heilsu- og uppeldisskóli Keilis býður upp á innan Íþróttaakademíu Keilis eru: ÍAK einkaþjálfun og ÍAK íþróttaþjálfun.
Keilir kappkostar einnig við að sinna vel endurmenntun þjálfara með stökum
námskeiðum. Fyrirhugað er að bjóða upp á fleiri námsbrautir sem tengjast íþróttum, heilbrigðis og uppeldisgreinum,
bæði á framhalds- og háskólastigi. Aðstaða nemenda til náms er afar góð en í húsnæði
Íþróttaakademíu Keilis er kennslu- og íþróttahús. Einnig er gott kennsluhúsnæði í aðalbyggingu Keilis að
Grænásbraut 910 á Ásbrú.
Fréttir
Mike Boyle kennir á Þjálfarabúðum Heilsuskóla Keilis
Hinn magnaði þjálfari og kennari, Michael Boyle mun kenna Þjálfarabúðum Keilis 23.-25. september ásamt Dave Jack og dr. Chris Mohr.
Lesa meiraUpplýsingar fyrir nýnema
Upplýsingar fyrir nýnema í ÍAK einkaþjálfun haust 2010 eru nú aðgengilegar hér.
Þjálfarabúðir Heilsuskóla Keilis
Dagana 23. - 25. september stendur Heilsuskóli Keilis fyrir þriggja daga þjálfarabúðum fyrir fagfólk í þjálfun og
heilsurækt. Nánari upplýsingar um þjálfarabúðirnar og leiðbeinendur má finna hér.
Lesa meira
Hvernig verður sterkur enn sterkari?
Einar Einarsson, kennari við ÍAK íþróttaþjálfun og ÍAK einkaþjálfun fjallar í þessari grein um þá
hugmyndafræði sem ÍAK íþróttaþjálfun gengur út frá. Greinin birtist í blaði
Íþróttakennarafélags Íslands.
Lesa meira
Á næstunni
23.09.2010
Upplýsingar um námið
Umsagnir nemenda
"ÍAK einkaþjálfaranámið er án efa besta einkaþjálfaranámið sem er í boði á íslandi í dag. Mjög góðir
kennarar og námið vel skipulagt svo það nýtist nemendum beint í starfi. Ekki nokkur spurning að við munum leita eftir því að ráða
ÍAK einkaþjálfara til okkar."

Ingi Páll og Þröstur Jón Sigurðssynir, eigendur Sporthússins













