Háskólabrú og Háskólastođir, undirbúningur til stúdentsprófs - Keilir

Samskipti Nemendur, kennarar og aðrir starfmenn skulu sýna hverjir öðrum kurteisi og virðingu í öllum samskiptum. Umgengni Nemendur skulu ganga

Skólareglur

Samskipti

Nemendur, kennarar og aðrir starfmenn skulu sýna hverjir öðrum kurteisi og virðingu í öllum samskiptum.


Umgengni

Nemendur skulu ganga snyrtilega um skólann og hans nánasta umhverfi. Neysla á matvælum , sælgæti og drykkjum er óheimil í fyrirlestrarsal og verkefnastofum. Öll neysla áfengis og vímuefna er bönnuð með öllu innan veggja skólans og umhverfi hans. Brot á þeim reglum geta leitt til tafarlausrar brottvísunar úr skólanum.


Mætingarskylda í fjarnámi

Skyldumæting er á allar vinnuhelgar. Kennari getur lagt fyrir verkefni sem skilast á vinnuhelgi.  Nemandi sem ekki mætir á vinnuhelgi getur ekki unnið það upp.  Ef nemandi getur ekki mætt á vinnuhelgi vegna veikinda ber honum að tilkynna það til verkefnastjóra fjarnáms skila inn veikindavottorði.  Nemandi ber sjálfur ábyrgð á að verða sér úti um þær upplýsingar sem fram fóru á vinnuhelgi.

Mikilvægt að nemendur mæti stundvíslega á vinnuhelgar til að koma í veg fyrir truflun.


Mætingarskylda í staðnámi

90% skyldumæting er í verkefnatíma og 100% skyldumæting er í alla verklega tíma. Ekki er mætingaskylda í fyrirlestra en nemendur eru hvattir til að mæta í þá þar sem efni verkefnatímans byggir á umfjöllun fyrirlestursins. Auk þess er efni úr fyrirlestri efni til prófs.

Ef um veikindi er að ræða verða nemendur að skila inn vottorði innan 3ja daga. Mætingarskylda má þó aldrei fara niður fyrir 60% þrátt fyrir vottorð.

 

Í alla verklega tíma í raungreinum er 100% mætingaskylda. Vottorð geta einkungis gilt fyrir 1 verklegan tíma í áfanga, nemendur skulu í slíkum tilfellum hafa samband við kennara.

 

Nemendur missa próftökurétt ef mætingaskyldu er ábótavant. Mæti viðkomandi 15 mín of seint í verkefnatíma telst hann ekki hafa mætt.

 

Mikilvægt er að nemendur mæti stundvíslega í allar kennslustundir til að koma í veg fyrir truflun. Nemendum er óheimilt að rápa á milli verkefnahópa nema af fenginnu leyfi frá kennslustjóra

Ef um veikindi er að ræða hjá nemanda eða barni skal skila inn vottorði innan 3ja daga.


Verkefni

Nemendum ber að skila þeim fjölda verkefna sem kennari leggur fyrir í hverju fagi. Mikilvægt er að nemendur geri sér grein fyrir því að þeir verða að gera verkefni og ritgerðir í samræmi við fyrirmæli kennara og er í alla staði óheimilt að nýta sér hugverk annarra í ritgerðum og eða verkefnum, nema heimilda sé getið í samræmi við viðurkennd fræðileg vinnubrögð.

Ef nemandi brýtur reglur varðandi verkefnavinnu eða ritgerðasmíð, fær hann einkunnina 0.


Íhlutun

Brot á reglum skólans kalla á að viðurlögum verði beitt og getur leitt til brottvísunar úr skóla.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf