Háskólabrú og Háskólastoðir, undirbúningur til stúdentsprófs - Keilir

Misserispróf eru haldin í 16. kennsluviku. Ekki er gert ráð fyrir upplestrarfríi, heldur lýkur kennslu á föstudegi og próf hefjast svo á mánudegi. Þá er

Próf og próftökuréttur

Misserispróf eru haldin í 16. kennsluviku. Ekki er gert ráð fyrir upplestrarfríi, heldur lýkur kennslu á föstudegi og próf hefjast svo á mánudegi. Þá er gert ráð fyrir að síðasta vika kennslu sé upprifjunarvika og nemendur nýti sér hana til lærdóms og skipulagningar.

Prófin eru ýmist skrifleg, munnleg eða verkleg. Misserisprófin eru venjulegast þriggja tíma ef þau eru skrifleg. Fer lengd prófa eftir efni og aðstæðum hverju sinni og er það kennari sem tekur ákvörðun um tímalengd prófa. Sama gildir um munnleg próf og verkleg, það er kennarans að ákveða með hvaða hætti hann prófar úr námsefninu. Prófafyrirkomulag skal þó liggja fyrir í upphafi annar í námsskeiðslýsingu.

Próf eru haldin almennt haldin á sal, yfirsetufólk er til staðar, en gert er ráð fyrir að kennari og prófstjóri séu einnig tiltækir á staðnum.

Til þess að nemandi hafi próftökurétt þá þarf hann að hafa náð 5 í meðaleinkunn úr verkefnahluta námssviðsins. Ef nemandi nær ekki tilskyldri lágmarkseinkunn þá telst hann fallinn á verkefnaeinkunn og telst því fallinn á námssviðinu.

Ef nemandi er veikur í prófi eða barn nemanda, á hann þá rétt á að taka sjúkrapróf, þarf hann að skila vottorði innan þriggja daga frá dagsetningu prófs.  Nemandi sem mætir í sjúkrapróf á ekki kost á upptökuprófi ef hann nær ekki prófinu.

Nemandi sem ekki nær lágmarkseinkunninni 5 á misserisprófi á rétt á að fara í upptökupróf. Fær viðkomandi þá hæst einkunnina 5 fyrir prófið. Ef nemandi fellur á upptökupróf á hann kost á því að finna sambærilegan kúrs um sumarið í samráði við kennara viðkomandi fags og kennslustjóra, í fjölbrautaskólum landsins og leggja fram formlega beiðni um að hann verði metinn til jafns til þess kúrs sem hann féll í.

Ef nemandi brýtur reglur um próftöku eða hefur rangt við fær hann einkunnina 0 og skal beittur viðurlögum. Ef nemandi mætir ekki í próf eða gengur út úr prófi fær hann einkunnina 0 og þarf að fara í upptökupróf til að ljúka námssviðinu.

Komi upp ágreiningur um námsmat á prófi á nemandi kærurétt varðandi námsmatið með ákveðnum skilyrðum þó og á þá rétt á að fá prófdæmingu óháðs prófdómara sem sker úr um ágreining um námsmat.

Prófsýning er staður og stund fyrir afgreiðslu slíkra mála. Þá getur nemandi fengið að skoða prófaúrlausn og einkunn og farið yfir málin ásamt kennara í viðkomandi fagi. Ef nemandi hefur hug á að kæra námsmat á prófi má kennari ekki afhenda honum prófúrlausnina, en nemandinn á kost á því að fá ljósrit af prófaúrlausn sinni, því prófúrlausn skal vera stöðugt í vörslu kennara eða annarra starfsmanna skólans uns prófdómari tekur við henni.

Ef kennari telur eftir ítrekaðar athugasemdir nemenda að annmarkar kunni að vera á prófi, ellegar ef kennari hefur þurft að sitja undir ásökunum um slíkt án þess að telja að þær eigi við rök að styðjast hefur hann þann kost að láta skjóta prófinu í dóm óháðs prófdómara. Það gerir hann með því að fara fram á slíkt við umsjónarmann Háskólabrúar sem tekur að sér framkvæmd málsins.


Prófareglur 

  • Óheimilt er að hafa samband við aðra nemendur á meðan á prófi stendur, einnig eru öll rafræn samskipti, svo sem póstur og msn bönnuð, hafa skal slökkt á þessum samskiptatækjum í prófum.
  • Slökkt skal vera á GSM símum.
  • Pennaveski skal geyma á gólfinu, undir prófborði í gagnalausum prófum.
  • Nemendur hafi jafnan gild skilríki með mynd aðgengileg fyrir prófayfirsetufólk.
  • Munið eftir að merkja prófblöð vel með nafni, kennitölu og dagsetningu.
  • Á prófborði skulu ekki vera nein gögn önnur en prófgögn, skilríki og leyfileg hjálpargögn samkvæmt fyrirmælum hverju sinni.
  • Hafi nemandi af misgáningi tekið með sér óleyfileg gögn ber honum strax að afhenda þau prófayfirsetufólki.
  • Óheimilt er að fjarlægja nokkurn hluta prófgagna að loknu prófi. Þetta gildir um öll gögn, þar með talið rissblöð og prófið sjálft.
  • Reykingar eða neysla matvæla er ekki leyfileg á meðan á próftíma stendur.
  • Ef prófið er tekið á tölvu, þá munið eftir að vista prófið á ykkar tölvum, undir ykkar nafni, með því að fara í save target as og vista það í ákveðinni möppu. Munið eftir að vista reglulega.
  • Óheimilt er að yfirgefa prófstofu fyrstu klukkustund prófs.
  • Öllum frágangi á prófaúrlausn skal vera lokið innan próftímans.
  • Ef nemandi lýkur prófi áður en próftími er búinn skal hann láta yfirsetumann vita, skila úrlausn, skilja allt dót eftir á borði og læðast út. Hafa skal hljóð frammi á göngum eða yfirgefa húsið.
  • Nemendur yfirgefi prófstað strax að lokinni próftöku. Þó er ekki er leyfilegt að yfirgefa prófstofu síðasta hálftímann af prófatíma.
  • Ef nemandi lendir í vandræðum með að senda prófið á prof@keilir.net , moodle eða prenta út, skal hann að fara út úr salnum og láta vita af sér. Tölvumaður kemur og fylgir viðkomandi að tölvunni og leysir úr hans málum.
  • Brot á þessum reglum varða vísun frá prófi eða úr námskeiði eftir atvikum, svo og viðurlög, skv. gildandi lögum og reglum Keilis.
  • Mæta skal á réttum tíma í próf, prófstofu verður lokað 5 mínútum eftir að próf hefst.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf