Flýtilyklar
Um skólann
Fyrstu nemendur Háskólabrúar Keilis hófu nám haustið 2007 en skólinn starfar í samstarfi við Háskóla Íslands. Að uppfylltum inntökuskilyrðum tekur nám á Háskólabrú um eitt ár eftir því hvaða deild er valin.
Haustið 2008 skrifuðu Keilir, Háskóli Íslands og menntamálaráðuneytið undir samning þess eðlis að próf á Háskólabrú skuli samkvæmt samningnum almennt teljast sambærilegt stúdentsprófi. Að Háskólabrú lokinni geta nemendur sótt um háskóla hérlendis og erlendis.
Kennsluhættir á Háskólabrú miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í
vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Við veitum nemendum okkar persónulega þjónustu og reynum að efla sjálfstraust þeirra
og sjálfstæði. Við leggjum mikið uppúr því að nemendur okkar kynnist samnemendum sínum og helstu þáttum í
skólastarfinu. Því er fyrsta vika vetrarins tileinkuð hópefli, hópavinnu og kynningu á þeirri vinnu sem framundan er.
Soffía Waag Árnadóttir





