Flýtilyklar
Umsagnir nemenda
Nemendur í Háskólabrú - Staðnámi
Nemendur í Háskólabrú - Fjarnámi
![]() |
"Það olli mér miklum áhyggjum að hefja skólagöngu aftur eftir 12 ára hlé, það kom mér
því á óvart hve auðvelt það var að byrja aftur í námi. Það þakka ég frábærri aðstoð kennara og
starfsfólks Keilis í þeim fögum sem voru mér erfið. Með aðstoð og stuðningi þeirra hefur áhugi og ánægja mín af
námi aukist til muna og nú er ég fullur af námsáhuga." Þórður Eyþórsson, nemandi á Háskólabrú Keilis 2008 - 2009 |
|
|
"Það hefur blundað í mér í mörg ár að mennta mig en mér hefur fundist afskaplega fráhrindandi að
taka stúdentinn með fullri vinnu og heimili. Það var því dásamleg tilfinning að sjá auglýsinguna frá Keili um að lykillinn inn
í háskóla tæki aðeins einn vetur. Ekki var verra að námið væri lánshæft og tekið tillit til aldurs og reynslu. Mér
leist vel á alla skipulagningu og þau skýru skilaboð að þetta yrði mikil vinna. Frábært var líka að fá góð
ráð um hvernig best væri að bera sig að varðandi skipulagningu og heimanám. Það veitti mér öryggi að hefja undirbúningsnám
tveimur vikum áður en sjálfur skólinn hófst, enda hafði ég ekki setið á skólabekk í 34 ár! Hópeflið reyndist vera
algjör snilld og þrátt fyrir að mér finnist ég stundum vera að drukkna í verkefnum þá er þetta ótrúlega gaman." Svanhildur Sif Haraldsdóttir, nemandi á Háskólabrú Keilis 2008 - 2009 |
|
![]() |
"Eftir að mér var sagt upp starfi ákvað ég að nýta tækifærið og fara í skóla. Ég átti
eftir að klára stúdentinn og því fannst mér Háskólabrú Keilis vera kjörið tækifæri fyrir mig þar sem
námið er stutt, hnitmiðað og fínn undirbúningur fyrir áframhaldandi nám á háskólastigi. Ég sé alls ekki eftir
því, námið stendur svo sannarlega undir væntingum og get ég hiklaust mælt með því." Oddný Nanna Stefánsdóttir, nemandi á Háskólabrú Keilis 2008 - 2009 |
Nemendur í Háskólabrú - Fjarnámi
![]() |
"Námið hefur komið mér skemmtilega á óvart en kennt er í lotum sem hentar mér vel. Það krefst mikillar
skipulagningar og vinnu, en þannig mun líka árangur nást. Konan mín var í staðnámi á Háskólabrú Keilis, hún
stundar nú nám í HÍ og gengur vel. Ég mæli hiklaust með náminu hvort sem um stað- eða fjarnám er að ræða." Ari Gylfason, fjarnemi á Háskólabrú 2008 - 2009 |
|
![]() |
"Ég flutti frá Danmörku til Íslands í haust þar sem maðurinn minn stundaði nám. Það besta í
stöðunni var að flytja á Ásbrú þar sem ég hafði selt húsið áður en ég flutti til útlanda. Á
Ásbrú er mjög gott að búa, rólegt og mjög barnvænt. Í Danmörku hóf ég fjarnám á
Háskólabrú. Mér líkar mjög vel við námið og er með frábæru fólki sem ég vona að eigi eftir að halda
hópinn í framtíðinni." Inga Ósk Ólafsdóttir fjarnemandi á Háskólabrú |
|
| "Áður en ég hóf nám á Háskólabrú í fjarnámi stóð ég á
tímamótum í lífinu og hafði hug á að breyta til. En draumurinn um nám var þó mjög fjarlægur. Ég er 40 ára
einstæð móðir með 2 börn á grunnskólaaldri, bjó í leiguíbúð á Austfjörðum og var rétt að
ná endum saman. Háskólabrúin á Keili og námsmannaíbúðirnar á Ásbrú opnuðu fyrir mér þann möguleika að láta drauminn rætast. Undirbúningsnám fyrir háskóla sem bauð upp á námslán og leiguverð sem er nær helmingi lægra fyrir rúmgóða 4ra herbergja íbúð en ég greiddi áður fyrir 3ja herbergja íbúð fyrir austan. Ekki skemmdi fyrir að gæludýr eru velkomin á Ásbrú. Vinkona mín sem flutti á Ásbrú á undan mér hvatti mig til að grípa tækifærið. Upphaflega ætlaði ég í staðnám á Háskólabrú en ákvað að byrja í fjarnámi um áramót frekar en að bíða fram á haust eftir að staðnámið hæfist. Ég sé ekki eftir að hafa tekið þá ákvörðun þar sem námsfyrirkomulagið í fjarnáminu hentar mér mjög vel. Fyrirlestrana get ég hlustað á hvenær sem er sólarhringsins og því auðvelt að skipuleggja námið að þörfum heimilisins. Stoðtímar í stærðfræði hafa verið í boði og þar sem ég bý á staðnum, hef ég haft möguleika á að nýta mér þá og er það ómetanleg viðbót við námið. Þá hafa nemendur Keilis aðgang að fínni námsaðstöðu sem nýtist betur þeim sem búa hér. Það er mjög gott að búa á Ásbrú, öll þjónusta í Reykjanesbæ innan seilingar og örstutt að skjótast í höfuðborgina. Ég er semsagt einstæð miðaldra móðir sem flutti þvert yfir landið og settist á skólabekk, mörgum árum eftir að hafa grafið þann draum." Jónína Guðmundsdóttir, fjarnemi á Háskólabrú 2009 - 2010 |
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni









