Flýtilyklar
Skipulag náms
Námið er kennt á tveimur önnum, haustönn og vorönn
Fjarnám með staðbundnum vinnuhelgum
Bóklegur hluti námsins er kenndur í fjarnámi en vinnuhelgar eru staðbundnarí Íþróttaakademíu Keilis á Ásbrú og á Akureyri. Þannig gefst sem flestum kostur á að stunda nám í ÍAK einkaþjálfun óháð búsetu.
Mikill fjöldi Íslendinga í Noregi hefur óskað eftir að stunda námið frá Noregi og býður Keilir nú í fyrsta skiptið
uppá staðlotur í Stavanger í Noregi. Staðloturnar verða alls fjórar; 2* vika á haustönn og 2* vika á vorönn.
100% skyldumæting er á vinnuhelgar. Fyrstu vinnuhelgi skólaársins taka allir nemendur í Reykjanesbæjarhópunum í Íþróttaakademíu Keilis. Akureyrarhópurinn hittist í Heilsuþjálfun Tryggvabraut 22 Akureyri.
Vinnuálag
Tveir fyrirlestrar (4*40mín) eru í viku í fjarkennslu og nemendur skulu leysa stutt verkefni úr hverjum fyrirlestri. Nemendur hafa 3 sólarhringa til að hlusta á fyrirlesturinn og vinna verkefnið og eru því ekki háðir ákveðnum stað og tíma heldur geta þeir stundað námið á þeim tíma sem þeim hentar best. Í gegnum fjarfundakerfið geta nemendur sent kennara og samnemendum spurningar um efni fyrirlestursins.
Staðbundnar vinnulotur eru eina helgi í mánuði frá föstudegi til sunnudags. Kennsla er frá kl. 12-19 á föstudögum, kl. 9-16 á laugardögum og kl. 9-16 á sunnudögum. Á staðbundnum lotum er fyrst og fremst lögð áhersla á verklega kennslu í þjálfun sem og hagnýt verkefni í bóklegum áföngum.
Á seinni önn eiga nemendur að greina einstakling, skrifa æfingakerfi byggt á útkomu greiningarinnar og markmiðum einstaklingsins, þjálfa hann í 8 vikur og skila skýrslu til kennara .
Reynt er að dreifa vinnuálaginu með því að hafa lokapróf áfanga um leið og áföngum er lokið.
Námið er krefjandi og gerðar eru miklar kröfur til nemenda um ástundun og kunnáttu. Nemendur þurfa að ná að lágmarki 7,0
í verkefnaeinkunn til að öðlast próftökurétt og að lágmarki 7,0 í prófi til að standast próf.
Bókalisti
Bækur fást í Bóksölu stúdenta
LEF 1003 og 2003 Essentials of Exercise Physiology, 4. útgáfa, 2010. Ritstjórar: William D. McArdle, Frank I. Katch og Victor L. Katch.
NÆR 1003 og 2003 Lífsþróttur-næringarfræði fróðleiksfúsra. Höfundur: Ólaf Gunnar Sæmundsson, útg. Stapaprent, 2007.
Þjálffræði og vöðva- og hreyfifræði ÍAK Kennslubók afhent í upphafi skólaárs
SÁl 1003 Foundation of sport and exercise phsycology, 4. útgáfa. Höfundar: Daniel Gould og Robert Weinberg.
Stúdentaíbúðir
Nemendur sem fá inngöngu í ÍAK einkaþjálfaranámið eiga kost á að leigja stúdentaíbúðir hjá Keili á meðan á námi stendur. Nánari upplýsingar má finna á: www.keilir.net. Þar að auki hafa nemendur aðgang að hótelíbúðum hjá Keili á vinnuhelgum. Verð fyrir tvær nætur er 6.000 krónur og 4.000 krónur fyrir eina nótt.





