Háskólabrú og Háskólastođir, undirbúningur til stúdentsprófs - Keilir

Hvað er fjarnám? Fjarnám Keilis á Háskólabrú er blanda af staðnámi og fjarnámi, í raun má segja að þetta sé dreifnám. Kennsla fer þannig fram  að eitt fag

Algengar spurningar

Hvað er fjarnám?

Fjarnám Keilis á Háskólabrú er blanda af staðnámi og fjarnámi, í raun má segja að þetta sé dreifnám. Kennsla fer þannig fram  að eitt fag er kennt í einu, yfirleitt hefst fagið á staðlotu sem er þá haldin hjá Keili eða þeim símenntunarstöðvum sem eru í samstarfi við Keili.

Keilir leggur mikla áherslu á að fjarnemendur séu ekki háðir stað né stund, þá er átt við að þeir þurfa ekki að horfa á fyrirlestur á fyrirfram skilgreindum tíma. Þeir þurfa hinsvegar að fylgjast með verkefnaskilum og skila þeim á fyrirfram tilgreindum tíma.

Nemendur í fjarnámi eru í miklum tengslum við kennara. Fyrirlestrar eru settir inn á e-mission. Nemandi sækir þá á netið og spilar í forritinu Silver Light.  Ef nemandi skilur ekki eitthvað í fyrirlestrinum getur hann rétt upp hönd alveg eins og í hefðbundnum fyrirlestri nema það er gert með því að ýta á hnapp í forritinu. Kennari svarar svo fyrirspurninni.

Með því að smella hér getur þú séð stutt myndband sem sýnir hvernig fjarkennslubúnaður Keilis virkar.


Hvernig er stærðfræði kennd í fjarnámi?

Margir óttast að það sé erfitt að læra stærðfræði í fjarnámi. Reyndin er hinsvegar sú að með því að nýta tæknina er stærðfræðikennsla Háskólabrúar í fjarnámi mjög einstaklingsmiðuð og gagnvirk. Nemandinn getur horft á fyrirlestrana og séð kennarann leysa dæmin eins oft og hann vill. Fjarnám er eins og fyrr segir mjög einstaklingsmiðað þar sem  nemendur geta sent fyrirspurnir inn á kennslukerfið sem kennarinn svarar um hæl. Svör kennarans safnast saman og allir aðrir nemendur geta nýtt sér svörin.


Hvernig er hópastarf í fjarnámi?

Í upphafi skólaárs er staðlota þar sem lögð er áhersla á að hjálpa nemendum að kynnast skólafélögum sínum. Nemendur  eru einnig aðstoðaðir við að setja upp samskiptatæki hjá sér til þess að auðvelda hópastarf.

Reynt er að raða í hópa eftir landsvæðum en sífellt fleiri kjósa að búa á Ásbrú á námstímanum, mynda þar námshópa og fá þannig stuðning frá skólafélögum. Það eru nefnilega margir sem t.d. geta lært hluta úr degi eða á kvöldin og um helgar þó svo hefðbundinn dagskóli henti þeim ekki. Nemendur Keilis eru í forgangi um íbúðir á Ásbrú, hvort sem þeir eru í stað- eða fjarnámi.


Ég kann eiginlega ekkert á tölvur, get ég stundað fjarnám?

Til þess að stunda fjarnám er krafist grunnþekkingar á tölvur, nemandinn þarf m.a.:

  • Að kunna að senda tölvupóst
  • Geta vafrað um á netinu
  • Þekkja grunnatriði Office umhverfisins (word, excel)

Hafi nemandi ekki þessa grunnþekkingu bendum við honum á að fara á tölvunámskeið. Hjá tolvunam.is er t.d. boðið upp á fjarnám á tölvur á mjög hagstæðu verði.

Fyrsta lotan í fjarnámi Háskólabrúar er tölvunámskeið, þar læra nemendur heilmikið sem mun nýtast þeim í náminu. Farið er í word og excel, sem eru mikið notuð í fjarnáminu, ásamt því að farið verður yfir kennslukerfið Moodle. Mikilvægt er að nemandinn sé búinn að kynna sér tölvuumhverfið og að hann hafi öðlast sjálfstraust til að starfa sjálfstætt.  Nemendur í fjarnámi eru mjög fljótir að tileinka sér þessi nýju vinnubrögð.


Kynnist ég einhverjum?

Á staðlotum hittast nemendur og vinna að hinum ýmsu verkefnum. Kennarar skipa í mismunandi hópa og þá er kjörið tækifæri til að kynnast því fólki sem er með þér í náminu.


Hitti ég kennarann einhvern tíma?

Fjarnámsnemar hitta kennarann sinn  í upphafi hverrar vinnulotu. Venjulega standa vinnuloturnar yfir frá kl. 14 – 18 á föstudegi og svo aftur kl. 9 – 16 á laugardegi.  Þetta er afar mikilvægur tími sem nemendur eiga með sínum kennara og þess vegna er skyldumæting á allar vinnuhelgar.


Hvað ef ég skil ekki neitt, fæ ég hjálp?

Nemendur í fjarnámi hafa greiðan aðgang að kennara sínum í gegnum tölvupóst og tölvukerfi skólans.  Þú getur einnig alltaf haft samband við verkefnastjóra fjarnáms sem finnur lausnina  með þér.  Námsráðgjafi Keilis er auk þess til taks fyrir nemendur.


Mig vantar sjálfsaga, er þetta nám fyrir mig?

Það þurfa allir að búa yfir sjálfsaga til að stunda nám. Hinsvegar gerum við þér auðveldara fyrir með því að láta þig skila verkefnum reglulega í hverri lotu. Við fylgjumst líka með því hverjir eru „að mæta“ á fyrirlestra, hverjir horfa á námsefnið og einnig er skyldumæting á vinnuhelgar.


Hvað er vinnuhelgi?

Vinnuhelgi er yfirleitt í upphafi hvers áfanga eða hverrar lotu.  Hefðbundin vinnuhelgi er þannig að þú mætir til okkar kl. 14 á föstudegi og ert til kl. 18 og kemur svo aftur á laugardeginum frá kl. 9 – 16.  Skyldumæting er á vinnuhelgar. 


Ég er lesblind/ur, hvaða aðstoð fæ ég?

Keilir býður nemendum með fatlanir og sértæka námsörðugleika velkomna til náms. Skólinn leggur áherslu á að veita nemendum sérstaka þjónustu til að ná árangri í námi þrátt fyrir hömlun sína. Helstu úrræði sem i boði eru: 

  • Stuðningsviðtöl við námsráðgjafa
  • Lengdur próftími - Breytt letur / stækkað letur
  • Skönnun námsefnis og talgervill
  • Próftaka á tölvu
  • Meira næði, sérstofa fyrir nemendur með lengri próftíma
  • Glósuvinur

Fjarnám getur verið mjög góð námsleið fyrir lesblinda. Lesblindir búa oft yfir miklu sjón og heyrnar minni. Fyrirlestrana geta nemendur hlustað á eins oft og þeir vilja en það hentar lesblindum yfirleitt mjög vel.

Lesblindum nemendum Keilis er boðið upp á forritið ViTal. ViTal er tölvuforrit (talgervill), sem les texta upphátt úr tölvunni. ViTal les í hvaða forriti sem er, hvort sem lesa á texta af netinu eða í Word, Power Point, og svo framvegis. Forritið getur ýtt undir sjálfstæðari vinnubrögð nemenda sem ná ekki sjálfvirkum, fyrirhafnarlausum lestri og góðum leshraða. Nemendur geta stillt hraða upplestursins sjálfir. ViTal er bara hægt að setja upp á PC tölvum, ekki Appel tölvum.


Hvar læri ég?

Þú getur lært hvar sem er – hvenær sem er.  Allir fyrirlestrar eru settir inn á Moodle sem er það kennslukerfi sem skólinn nýtir sér.  Þú getur einnig hlustað eins oft og þú vilt á einstaka fyrirlestur eða bara hluta af honum.  Þú þarft ekki neinn sérstakan tæknibúnað til að vera fjarnemandi á Háskólabrú Keilis.  Það eina sem þarf er viljinn til að læra og tími til að stunda þann lærdóm.  Við hjálpum nemendum að mynda námshópa út um allt land. Þú getur einnig fengið aðstöðu hjá Keili eða í Símenntunarmiðstöðinni  á þínu svæði.


Ég bý erlendis, get ég stundað fjarnám?

Þú getur lært hvar sem er – hvenær sem er og útlönd eru þar engin undantekning.  Það sem þarf er nettenging og ef hún er til staðar þá er þér ekkert að vanbúnaði.


Er námið lánshæft?

Fjarnám á Háskólabrú er lánshæft samkvæmt reglum LÍN svo fremi sem nemendur séu í fullu námi og uppfylli skilyrði lánasjóðsins um úthlutun.  Einnig er hægt að stunda námið á hálfum hraða en þá er það ekki lánshæft.


Hversu langt er námið?

Fjarnámið hefst í janúar og því lýkur með útskrift ári seinna.  Sjá nánar dagskrá fyrir hverja deild hér.


Hvernig tölvu og hugbúnað þarf ég?

Nemendur þurfa að vera með Office 2007 pakkann uppsettan á tölvum sínum, vert er að benda á að upplýsingatækni er kennd á office umhverfið í PC tölvum og því eru þær tölvur hentugri til námsins þó svo bæði gangi að nota pc og Apple tölvu. Þeir sem nota Apple tölvur þurfa að vera með Mac office 2008 uppsett á vélunum hjá sér og gera ráð fyrir því að sum verkefni séu tímafrekari í vinnslu.

Skólinn býður nemendum sem eiga við námsörðuleika að stríða upp á að nota vital talgervil. Nemendum er bent á að til að nota hugbúnaðinn þarf Pc tölvu, hugbúnaðurinn virkar ekki í Apple tölvum.

Nánari upplýsingar um tölvuþjónustuna má finna hér.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf