Til hamingju með að vera að hefja háskólanám í tæknifræði hjá Keili. Skólinn býður upp á nám í Orku- og umhverfistæknifræði og Mekatróník hátæknifræði. Hér má finna upplýsingar um nokkur mikilvæg atriði fyrir nýnema.
Upphaf kennslu á haustmisseri 2012
Móttaka nýnema er þriðjudaginn 7. ágúst kl. 9:00. Námið fer fram í húsnæði Keilis á Ásbrú.
Upplýsingasíða Keilis fyrir nýnema
Aðstaða og þjónusta á svæðinu
Nemendur hjá Keili fá aðgangskort í rútu milli Ásbrúar og Reykjavíkur. Hægt er að nálgast upplýsingar um leiðarkerfi hérna. Í skólanum er mötuneyti fyrir starfsfólk og nemendur, ásamt sjálfsölum og kaffiaðstöðu. Auk þess er öll stoðþjónusta á svæðinu, svo sem bókasafn, tölvuþjónusta, námsráðgjafar og fleira.
Nánari upplýsingar um aðstöðu og þjónustu hjá Keili og á Ásbrú má nálgast hér.
Kennsluáætlun og bækur
Hægt verður að nálgast upplýsingar um kennsluáætlun, stundatöflur, dagsetningar og bókalista á Kennslualmanaki tæknifræðinámsins. Bókasölu annast Bóksala Stúdenta, nema annað sé tekið fram.
- Upplýsingar um kúrsa og áfangalýsingar í Orku- og umhverfistæknifræði
- Upplýsingar um kúrsa og áfangalýsingar í Mekatróník hátæknifræði