Frá og með áramótum hefst nám á Háskólabrú bæði á Austur- og Norðurlandi
Háskólabrú Keilis er aðfaranám að háskólanámi og fer hún nú í fyrsta skipti fram á Austurlandi- og Norðurlandi. Námið er blanda af stað- og fjarnámi og fara staðlotur nú fram í Reykjanesbæ, hjá SÍMEY á Akureyri og ÞNA á Reyðarfirði. Háskólabrú Keilis í fjarnámi - veitir nemendum góðan undirbúning undir háskólanám og er þróuð í samstarfi við Háskóla Íslands.
Umsóknarfrestur um nám á Háskólabrú á Austur- og Norðurlandi er til 4. janúar
Námið
Nám á háskólabrú í fjarnámi er fullt nám og er því lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Fjarnám hefst í janúar og útskrift er í febrúar ári seinna.
Nemendur geta einnig stundað námið á hálfum hraða en þá er námið ekki lánshæft samkvæmt reglum LÍN.
Nemendur nota fartölvur við nám sitt. Lögð er áhersla á kennsluhætti og þjónustu með þarfir fullorðinna nemenda í huga.
Námsfyrirkomulag
Námsfyrirkomulagið er með þeim hætti að nemendur mæta á vinnuhelgar í upphafi hverrar námslotu. Vinnuhelgar standa að jafnaði frá kl. 14 - 18 á föstudögum og kl. 9 - 16 á laugardögum. Skyldumæting er á vinnuhelgar.
Námið fer fram í formi fyrirlestra og verkefna. Lokapróf eða lokaverkefni eru í lok hverrar námsgreinar. Öll lokapróf eru tekin á viðurkenndum prófstöðum.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag fjarnáms má sjá í spurt og svarað um fjarnám
Á fyrstu vinnuhelgi verður samhristingur þannig að nemendur kynnist hverjir öðrum sem og kennurum, til að auðvelda samskiptin í framhaldinu. Seinni
hluta helgarinnar verður kennsla í upplýsingatækni. Kennt er á Microsoft Office 2007. Nemendur nota fartölvur við nám sitt og þurfa að koma
með Microsoft Office 2007 uppsett í sinni fartölvu.
Fjöldi verkefna í hverju fagi eru jafnmörg og einingar fagsins, í 5 eininga fagi eru 5 verkefni, 4 eininga fagi eru 4 verkefni og í 3 eininga fagi eru 3 verkefni í lotu. Kennslan fer fram í gegnum fjarkennslubúnað skólans og eru nemendur því ekki háðir fjarfundarbúnaði og geta því stundað nám sitt hvar í heiminum sem er og hvenær sem er.
Þjónusta við nemendur
Þekkingarnet Austurlands veitir nemendum á Austurlandi stoðþjónustu. Þar er námsráðgjafi að störfum sem nemendur geta leitað til og einnig mun símenntunarstöðin bjóða upp á stoðtíma í stærðfræði fyrir nemendur. Þá eru nemendur velkomnir til að nýta sér þá aðstöðu sem símenntunarstöðin hefur upp á að bjóða.
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar veitir nemendum á Norðurlandi stoðþjónustu. Þar er náms- og starfsráðgjafi að störfum sem nemendur geta leitað til. Þá eru nemendur velkomnir til að nýta sér þá aðstöðu sem símenntunarstöðin hefur upp á að bjóða.
Reglur um námsgjöld má finna hér
Verkefnastjóri fjarnáms á Háskólabrú er Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir