Flýtilyklar
Ráðstefna um Eyjafjallajökul og flugið
Flugakademía Keilis stendur þessa dagana fyrir alþjóðlegri ráðstefnu þar sem fjallað er um eldgosið í Eyjafjallajökli og
áhrif öskufalls á flugrekstur.
Til ráðstefnunnar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila.
Ráðstefnan er haldin dagana 15. og 16. september á gamla varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll sem nú heitir Ásbrú
Á ráðstefnunni er leitast við að svara spurningum eins og hvað gerðist í Eyjafjallajökli, af hverju lokaðist lofthelgi Evrópu, hvaða
reglum var fylgt og hvaða lærdóm má draga af þessum vanda. Einnig verður fjallað um hvort og hvernig má draga úr umfangi áhrifa
öskudreifingar á flugumferð og hverjir eigi að taka ákvarðanir um hvernig minnka má áhættu vegna hennar.
Fyrirlesarar eru flestir úr röðum ofangreindra stofnana og samtaka og er um þessar mundir verið að ganga frá endanlegri dagskrá. Vitað er
að Eric Moody, fyrrverandi flugstjóri hjá British Airways, tekur þátt í
ráðstefnunni en hann var við stjórnvölin þegar breiðþota hans lenti í öskufalli við Jövu 24. júní 1982 en þá
drapst á öllum fjórum hreyflum þotunnar. Flugmönnum tókst að koma þeim í gang á ný og lenti vélin heilu og höldnu. Mun
flugstjórinn skýra frá reynslu sinni í þessu flugi. Þá hafa nokkrir af fremstu vísindamönnum heims á sviði
eldfjallafræða og öskudreifingar staðfest þáttöku sína.
Helstu innlendu samstarfsaðilar Keilis um skipulag ráðstefnunnar eru samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, iðnaðarráðuneytið,
utanríkisráðuneytið, Flugmálastjórn Íslands, flugfélögin Atlanta, Icelandair og Flugfélag Íslands, Veðurstofa Íslands,
Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Félag íslenskra atvinnuflugmanna svo og Verkfræðingafélag Íslands og
Tæknifræðingafélag Ísands. Þá hefur verið leitað samstarfs við ýmsa erlenda aðila svo sem samtök flugfélaga,
flugmannafélaga, evrópskra og alþjóðlegra stofnana á sviði flugsins og vísindastofnana.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari ráðstefnunar.
Nánari upplýsingar um ráðstefnunna er að fá að vefsíðu Keilis: http://en.keilir.net/keilir/conferences/eyjafjallajokull
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni






