Keilir - 14.04 2011

Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið. Bókasöfn gegna mikilvægu hlutverki sem
miðstöð fræðslu og þekkingar, fyrir framboð á tón- og myndlistarefni, yndislestri og afþreyingu, fyrir aðstoð við
upplýsingaöflun og gagnaleitir.
Bókasöfn eru auk þess samkomuhús, menningarmiðstöðvar og góður staður til að vera á. Bókasöfn eru heilsulind hugans.
Í tilefni dagsins gefur bókasafn Keilis bókamerki á meðan birgðir endast.