Flýtilyklar
Um Flugakademíuna

Flugakademía Keilis býður upp á nám í flugtengdum greinum svo sem einkaflugnám, atvinnuflugnám til blindflugsréttinda, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn og flugrekstri. Í undirbúningi er nám í flugvirkjun.
Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi en staðsetning skólans felur í sér einstakt tækifæri til þess að skapa frábæra aðstöðu bæði til kennslu flugtengdra greina og öryggisfræða.
Kári Kárason
Skólastjóri Flugakademíu Keilis
Kennsluleyfi
Keilir - Flugakademía hefur hlotið öll tilskilin leyfi frá Flugmálastjórn Íslands til að halda bókleg og verkleg námskeið fyrir EINKAFLUG, ATVINNUFLUG og BLINDFLUG og til að kenna á glænýjar flugvélar Keilis af gerðinni Diamond DA-20-C1, DA-40 TDI og DA-42 NG.
Einnig hefur Keilir - Flugakademía hlotið leyfi frá Flugmálastjórn Íslands til að halda bóklegt og verklegt grunnnámskeið fyrir flugumferðarstjóra. Í framhaldi af grunnnámskeiði er tekist á við námskeið til áritunar í nemaskírteini flugumferðarstjóra. Keilir býður upp á nám í flugturni (ADI-TWR) og í aðflugsstjórn (APP).
Nýtt kennsluleyfi
Keilir - Flugakademía hefur hlotið öll tilskilin leyfi frá Flugmálastjórn Íslands til að halda grunnnámskeið fyrir flugfreyjur, en þetta leyfi höfðu bara flugfélög áður. Keilir er fyrsti flugskólinn til að hljóta þetta leyfi. Þeir nemendur sem útskrifast af Grunnnámskeið Keilis í Flugþjónustu geta fengið nám sitt metið hjá þeim flugrekendum sem þau sækja um vinnu hjá. Leyfið má sjá hérna [PDF]

Flugakademía Keilis
Aðalbygging Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú
235 Reykjanesbær







