Flýtilyklar
Flugfloti
Flugvélafloti Keilis er nýstárlegur og hátækniflugvélar eru notaðar til kennslunnar. Vélarnar eru af gerðinni Diamond DA-20, DA-40 og DA-42. Hægt er að skoða einar fullkomnustu kennslu- og einkaflugvélar sem framleiddar eru í dag á http://www.diamondaircraft.com/.
Kynningarbæklingur um flugflota Keilis (pdf)
Öryggi er í fyrirrúmi hjá Flugakademíu Keilis. Diamond flugvélarnar eru smíðaðar úr koltrefjaefnum sem gerir mögulegt að hanna lögun þeirra eftir loftaflsfræðilegum þáttum til að hámarka afköst og styrk. Styrkur koltrefjaefna er vel kunnugur flugvélaframleiðendum enda eru Boeing 787 og Airbus 380 að mestu búnar til úr koltrefjaefnum.

Eiginleikar byggingarefnisins gera það að verkum að vélarnar eru hvort tveggja í senn, sterkar og straumlínulagaðar. Styrkur skrokksins verndar flugmenn og farþega fyrir hnjaski og sætin ásamt umgjörð stjórnklefans þola álag upp á 26-falda þyngdarhröðun jarðar. Mannslíkaminn þolir hins vegar ekki nema 25-falda þyngdarhröðun að talið er. Skrokkurinn sem umlykur stjórnklefann og farþegarýmið er afar sterkur og veitir vörn gegn brotlendingum í grjóti, hrauni, jöklum og ójöfnum jarðvegi eða sjó.
Diamond flugvélar Keilis eru allar búnar flugmælitækjum sem leyfa flug að degi sem nóttu. Hreyflar DA-40 og DA-42 vélanna eru háþróaðir flugvélahreyflar sem ganga fyrir þotueldsneyti.
DA-40 og DA-42 vélarnar eru búnar háþróuðum tölvubúnaði sem skilar öllum flugupplýsingum rafrænt upp á tvo stóra skjái. Þetta kerfi sem er af gerðinni Garmin G1000 er mjög vinsælt í minni flugvélum í dag vegna notkunarmöguleika þess og fullkomnara en í mörgum farþegaflugvélum.
Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um flugvélaflota Keilis.
DA-20-C1 Eclipse
Tveggja sæta kennsluflugvél með 125 hestafla hreyfli sem eyðir um 22 lítrum af flugvélabensíni á klst. Mjög hagkvæm, einföld og hentug kennsluflugvél. Bandaríski flugherinn notar þessa tegund til að þjálfa sína herflugmenn í grunnflugnámi.
Einstök hönnun stjórntækja og stjórnklefa þar sem áhersla er lögð á að maður og vél vinni vel saman. Frábært útsýni og mikil afköst gera hvert einasta flug að hreinni skemmtun.

DA-40 TDi Diamond Star
Fjögurra sæta kennslu- og ferðaflugvél með 135 hestafla hreyfli sem eyðir um 20 lítrum af þotueldsneyti á klst. Einstaklega hagkvæm og umhverfisvæn flugvél, sem nýtist vel til ferðalaga jafnt sem flugkennslu. Vélin er búin fullkomnum blindflugsbúnaði, þ.á.m. stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum.
Hér má finna allar helstu upplýsingar um flugvélina þar á meðal afkastagetu.
Hreyflarnir í DA-40 vélunum eru af gerðinni TAE-125-02 og eru 2.0L díselhreyflar með forþjöppu og millikæli. Hreyflarnir eru tölvustýrðir (Full Authority Digital Engine Control - FADEC) til að hámarka afköst og sparneytni.
Þessir hreyflar eyða 50% minna en hreyflar í sambærilegum 4 manna flugvélum og mengun af þeim er einungis brot af því sem fólk á að venjast af eldri flugvélahreyflum. Hávaði er einnig minni en í sambærilegum flugvélum.

DA-42 NG (New Generation)
Fjögurra sæta kennslu- og einkaflugvél með tvo 166 hestafla mótora sem eyða samtals um 45 lítrum / 12 gallonum af þotueldsneyti á klst. á 70% afli. Eina kennsluvélin í þessum flokki sem hefur vottun til flugs í ísingarskilyrðum, sem hentar frábærlega við íslenskar aðstæður.
Flugmælitækin eru afar fullkomin og eru með fjölmörgum öryggisatriðum eins og stafrænni sjálfstýringu, líkt og nútíma farþegaflugvélar. Flug frá Keflavík til Akureyrar tekur 1 klst og 10 mín og er hámarks farflugshraði vélarinnar 176 hnútar (326 km/klst). Vélin kemst upp í 18.000 feta hæð en flugmenn og farþegar þurfa auka súrefni við slíkar aðstæður.
Tveggja hreyfla DA-42 getur flogið á einum hreyfli yfir öll fjöll og jökla á Íslandi. Svipaðar tveggja hreyfla kennsluflugvélar hætta að klifra í 3.800 fetum (sjá hér). Eyðsla díselhreyflanna er um það bil 6 USG á klst, eða um 23 lítrar á klst. pr. hreyfil sem er um 40% minna en eyðsla Piper Seminole.
Einfalt er að starfrækja nýju hreyflana. Á tveggja hreyfla vélinni þarf einungis eitt handtak til að drepa á hreyfli og ganga örugglega frá honum til áframhaldandi flugs á hinum hreyflinum. Til að setja sama hreyfil aftur í gang þarf einungis 2 handtök: Aflgjöf stillt á hægagang og hreyfilrofi á.
Hreyflarnir halda 100% afli upp í um 10.000 feta hæð.
Mikilvægur öryggisþáttur á þjálfunarflugvél með tvo hreyfla er möguleikinn að geta dregið allt afl af öðrum hreyflinum í æfingaskyni. Við slíkar aðstæður eru hefðbundnir flugvélahreyflar í hættu þegar kalt er í veðri, því að þeir eru loftkældir og eiga þá á hættu að strokkar þeirra snöggkólna og þrengja að bullum og skemma út frá sér. Slit eykst stórlega og áreiðanleiki minnkar. Með nýju hreyflunum er þessi hætta úr sögunni. Hreyflarnir eru vatnskældir og haldast í kjörhita, jafnvel þó allt afl sé dregið af þeim og hreyfilbilanir æfðar.
Nýtt!
DA-42NG flugvél Flugakademíu Keilis hefur verið uppfærð og geta tæki hennar nú sýnt flugmanni sýndarveruleika mynd af umhverfinu í kringum vélina. Hugbúnaðurinn byggir á GPS tækni, en með henni veit tækið hvar flugvélin er og getur reiknað út hæð hennar til að fá nákvæma þrívíddarmynd. Gagnagrunnur fyrir landslagið er í tækinu og getur tækið því sýnt fjöll á skjánum eins og horft væri á þau út um gluggann á vélinni.
Þetta tæki eykur öryggi, en því miður verða flugnemar í blindflugi að fljúga eftir mælum og læra þá list, áður en þrívíddartæknin (Synthetic Vision System) verður þeim til halds og trausts.







