Flýtilyklar
Algengar spurningar
Kröfur
Hvaða heilbrigðiskröfur eru gerðar til flugnema?
Flugnemar þurfa að gangast undir heilbrigðisskoðun hjá fluglækni áður en þeir geta fengið útgefið flugnemaskírteini. Hægt er að panta læknisskoðanir hjá Fluglækningastofnun í síma 551-6900 eða í t-pósti aeromed@simnet.is. Heilbrigðisskoðanir eru annað hvort 2.flokks sem dugir fyrir alla einkaflugmenn eða 1.flokks þar sem kröfurnar eru eilítið hærri og atvinnuflugmenn þurfa að standast.
Þarf ég einhverja menntun til að geta byrjað að læra flug?
Við gerum kröfu um að nemendur á einkaflugmannsnámskeiðum geti lesið og skilið ensku. Það er vegna þess að handbækur flugvélanna eru á ensku og þær verða nemendur að geta lesið áður en lengra er haldið.
Hvaða kröfur eru gerðar til nemenda sem sækja um Atvinnuflugmannsnám ATPL?
Umsækjendur um ATPL námskeið þurfa að vera handhafar einkaflugmannsskírteinis en jafnframt mælum við með því að nemendur hafi staðist 1. flokks læknisskoðun áður en námið hefst. Umsækjendur þurfa að hafa staðgóða þekkingu á stærðfræði, ensku og eðlisfræði þegar námið hefst, í því skyni að geta tileinkað sér námsefnið. Keilir tekur gild stúdentspróf í ofantöldum greinum, en þeir sem ekki hafa stúdentspróf eiga samt sem áður kost á því að þreyta inntökupróf í þessum greinum.
Kostnaður við námið
Hvað kostar að verða flugmaður?
Það fer eftir því hversu langt menn vilja fara í náminu. Einkaflugmannsnámið er að lágmarki 45 klst og bóklegt námskeið. Kostnaður við slíkt er hjá Keili 1.005.000 kr og hægt er að fá aðstoð við fjármögnun námsins hjá Íslandsbanka.
Hvað kostar að verða atvinnuflugmaður - með öllu?
Ef hugurinn stefnir hærra, þá má segja að heildarkostnaður við flugnám frá byrjun til atvinnuflugmannsskírteinis með blindflugsréttindum sé að lágmarki 5.254.730 krónur miðað við gildandi verðskrá 2009. Keilir hefur sett upp skipulag þar sem námið er áfangaskipt og nemendur geta séð á hverjum tíma hver fjárþörfin er og hvenær námsáföngum lýkur.
Námslengd
Hvað tekur langan tíma að verða einkaflugmaður?
Bókleg námskeið taka að jafnaði um 20 vikur í fjarnámi. Verklegu kennslunni getur hæglega verið lokið á þeim tíma liðnum og því má reikna með að vera kominn með full einkaflugmannréttindi 6 mánuðum eftir að nám hefst.
Hvað tekur langan tíma að verða atvinnuflugmaður?
Atvinnuflugmannsnám er tvískipt eins og annað flugnám, verklegt og bóklegt. Bóklega námið tekur 12 mánuði og verklega námið getur klárast á svipuðum tíma. Verklega námið felur í sér að flugmenn fljúga um og safna sér flugreynslu og tekur það oft drjúgan tíma. Keilir gerir ráð fyrir að nám frá grunni að atvinnuflugmannsréttindum taki 25 mánuði, þar af 17 mánuði í bóklegu námi.
Próf
Hvaða próf þarf maður að taka fyrir einkaflugmannsréttindi?
Nemendur sem útskrifast af einkaflugmannsnámskeiði fá réttindi til að þreyta próf hjá Flugmálastjórn Íslands. Nánari upplýsingar um bóklega námið er að finna hérna.
Hvaða próf þarf maður að taka fyrir atvinnuflugmannsréttindi?
Nemendur sem útskrifast úr atvinnuflugmannsnámi hjá Keili fá rétt til að þreyta próf hjá Flugmálastjórn Íslands. Nánari upplýsingar um bóklega námið er að finna hérna.
Flugtímar
Er hægt að leigja hjá ykkur flugvélar?
Það er hægt. Flugvélarnar okkar eru allar nýjar og DA-40 og DA-42 vélarnar eru mjög tæknivæddar. Þeir flugmenn sem hafa áhuga á að fljúga nýjustu kennsluflugvélum á Íslandi er bent á að hafa samband við kari@keilir.net til að panta sér kynningu á hinum nýju flugvélum. DA-40 og DA-42NG vélarnar eru útbúnar Garmin G1000 flugmælitækjum og þurfa flugmenn að sækja sérstakt námskeið hjá Keili. Þeir flugmenn sem kaupa 5 tíma eða fleiri á DA-40 fá námskeiðið með í kaupunum.
Er afsláttur ef maður kaupir marga flugtíma í einu?
Já, við veitum staðgreiðsluafslátt af flugtímum sem er mismunandi eftir fjölda tíma.
Hvar bóka ég flugtíma?
Hægt er að bóka flugtíma á netinu, með því að smella hérna.
Almennt
Hvar eru skrifstofurnar ykkar?
Við erum með skrifstofur í aðalbyggingu Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú (við Keflavíkurflugvöll). Verklega kennslan fer fram frá Skýli 780 og þar eru flugvélarnar okkar jafnframt geymdar og þeim haldið við.







