Flugakademían, nám í einkaflugi, atvinnuflugi og flugtengdum greinum - Keilir

Flugakademía Keilis býður metnaðarfullt flugnám auk fjölda flugtengdra námsgreina og bóklegur hluti einkaflugnáms og atvinnuflugnáms er kenndur í fjarnámi. Verklegar æfingar í fimm glænýjum kennsluvélum, þar á meðal DA-40D og DA-42NG

Flugakademía Keilis - Velkomin!

Ný námskeið í einkaflugi og atvinnuflugi hefjast 16. janúar
Námskeið fyrir verðandi flugkennara hefst um miðjan febrúar

Hér finnur þú allt sem viðkemur flugnámi frá fyrsta flugtíma til atvinnuflugmannsprófs. Við bjóðum þér að skoða nánar:
  

Einnig er hægt að skoða algengar spurningar um flugnám.



Flugumferðarstjórn


Hér finnur þú allt um nám í flugumferðarstjórn. Keilir býr yfir fullkomnum hermi sem líkir eftir aðstæðum sem flugumferðarstjórar vinna við, en þeirra starf felst í því að liðka fyrir flugumferð og fyrirbyggja árekstra á milli loftfara og milli loftfara og hluta og farartækja á jörðunni.

Kennsluleyfi Keilis innifelur:


Flugþjónusta


Sífellt fleiri kjósa að mennta sig á sviði flugsins. Flugþjónustunám Keilis uppfyllir allar kröfur sem Flugmálayfirvöld gera til grunnöryggisþjálfunar þjónustuliða. Að flugþjónustunámi loknu þurfa nemendur þó alltaf að gangast undir sérstök námskeið hjá flugfélögunum eins og reglur kveða á um.

Hjá okkur starfa reyndir kennarar frá Icelandair og fleiri flugfélögum. Nánari upplýsingar um námið færðu hérna.

Fréttir

Háskóladagurinn 2012


Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt á árlegum Háskóladegi, sem verður haldinn, 18. febrúar næstkomandi kl. 12 - 16. Gestir geta kynnt sér nám, starfsemi og þjónustu Keilis í Háskólabíó.   Lesa meira

Bókagjöf


Bókasafni Keilis barst ánægjuleg bókagjöf á dögunum. Einar Gunnar Einarsson einkaflugmaður í New Jersey í Bandaríkjunum sendi Flugakademíu Keilis fullan kassa af flugtengdu efni sem nýtist vel til kennslu í hinum ýmsu fögum innan Flugakademíunnar. Lesa meira

Námskeið í flugumsjón

Flugakademía Keilis kynnir námskeið fyrir verðandi flugumsjónarmenn sem hefst um miðjan febrúar með fyrirvara um lámarks þátttökufjölda. Á námskeiðinu læra nemendur m.a. að beita þekkingu sinni við flugáætlanagerð og að veita flugmönnum öflugan stuðning fyrir flug og á meðan því stendur. Lesa meira

Flugkennaranámskeið

Námskeið fyrir verðandi flugkennara

Flugakademía Kelis kynnir í fyrsta sinn eftir mikla eftirspurn námskeið fyrir verðandi flugkennara. Námskeiðið  veitir fyrstu réttindi til flugkennslu.

Lesa meira

Bókunarstaða flugvéla

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Könnun

Hver er upplifun þín af Keili?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf