Flýtilyklar
Flugumferðarstjórn
Inntökuskilyrði
Gerð er rík krafa um góða enskukunnáttu.
Einnig er gerð krafa um hrein sakavottorð og að nemendur standist læknisskoðun. Bent er á að hægt er að panta læknisskoðun hjá Fluglækningastofnun í síma 551 6900 eða í t-pósti á aeromed@simnet.is.
Námsskipulag
Námið skiptist í grunnnám (Basic Course) og áritun í aðflugsstjórnun (APP). Að því búnu geta nemendur sótt um nemaskírteini hjá Flugmálastjórn og í framhaldi sótt um að komast að í flugturni.
Áður en námi lýkur skulu nemendur hafa staðist a.m.k. fjórða stig af sex í enskukunnáttu, skv. kröfum Flugmálastjórnar. Þeir sem ekki hafa íslensku sem móðurmál skulu hafa lokið sama stigi í íslensku, hyggist þeir starfa hérlendis.
Til að fá störf í flugturni þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Sérgreinar flugumferðarstjórnar eru viðurkenndar til kjörsviðs á Háskólabrú en hún er viðurkennd sambærileg við stúdentspróf.
Námsgreinar
Kynning, lagaumhverfi (LAW), stjórnun flugumferðar (ATM), veðurfræði (MET),siglingafræði (NAV), flugeðlisfræði (ACFT), mannlegir þættir (HUM), tæki og kerfi(EQPM), vinnuumhverfi (PEN), flugvellir (AGA), neyð-óvenjulegar aðstæður og minnkandi skilvirkni tækja, æfingar í kennslustofu, æfingar í hermi , turnæfingar.
Upplýsingar og skólagjöld
Allt námið kostar kr. 580.000 og er lánshæft hjá LÍN. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur T. Sigurðsson: gudmundur@keilir.net





