Flýtilyklar
Flugþjónustunám
Umsóknarfrestur fyrir haustið 2010 er til 7. júní
Inntökuviðtöl eru hafin
Nám í flugþjónustu er afar lifandi og skemmtilegt, og miðar að því að gera nemendur tilbúna til spennandi starfa í háloftunum víðs vegar um heiminn. Nú þegar hafa útskrifaðir flugþjónustunemar Keilis fengið ráðningu hjá flugfélögum bæði erlendis og hérlendis.
Í fyrsta sinn á Íslandi er nám í flugþjónustu kennt til fullra réttinda á einum stað. Námið er að auki metið sem kjörsvið til stúdentsprófs. Það þýðir að nemendur geta haft sérnám flugfreyja/þjóna sem kjörsvið til stúdentsprófs. Það er algjört nýmæli á Íslandi. Námið fer fram við bestu aðstæður með einstakri verklegri aðstöðu fyrir flugfreyjur og flugþjóna.
Inntökuskilyrði er 18 ár aldur a.m.k. og ekki færri en 70 einingar í framhaldsskóla. Þar af skulu hið minnsta 9 vera í ensku. Hver umsækjandi verður metinn skv. fyrri menntun. Í einhverjum tilvikum verður möguleiki að víkja frá einingakröfum ef önnur sambærileg menntun telst fullnægjandi.
Um er að ræða tveggja anna nám. Námið er uppsett samkvæmt Evrópustöðlum og framkvæmt í samvinnu við Icelandair, Iceland Express, Flugfélag Íslands og Primera Air og að uppfylltum skilyrðum sem sett eru af Flugmálastjórn Íslands.
Námið er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna LÍN fyrir þá sem uppfylla skilyrði sjóðsins.
Næsti hópur verður tekinn inn á haustönn 2010, umsóknarfrestur er til 7. júní.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Blöndal deildarstjóri flugþjónustubrautar: bryndis@keilir.net
Á næstunni







