Flýtilyklar
Flugrekstrarfræði (diplomanám)
Fagráð flugrekstrar, skipað fulltrúum Háskóla Íslands og Keilis, hefur nú staðfest og vottað nám í flugrekstrarfræðum
Um er að ræða 60 ECTS einingar sem kenndar verða á tveimur árum. Er málum þannig fyrir komið svo fólk í vinnu geti stundað þetta spennandi nám. Kennt verður í lotum og ein námsgrein tekin fyrir í senn (sjá skipulagið með því að smella á hnapp á þessari síðu).
Kennslufyrirkomulag: Flugrekstrarstjórn verður kennd í fjarnámi þar sem nemendur geta sótt fyrirlestra og ítarefni á netinu óháð stað og stund. Námið tekur fjórar annir. Kennarar svara spurningum sem kunna að kvikna. Nemendur tengdir saman á netinu og hittast á vinnuhelgum sem eru í byrjun hvers námskeiðs. Kennt í lotum þar sem ein námsgrein er tekin fyrir í einu og lýkur hverri lotu með prófi.
HÉR má sjá námskeiðslýsingar
HÉR má sjá skipulag námsins
HÉR má sjá stundaskrá vorannar
Námsgjöld
Námið í heild kostar kr. 600.000. Námsgjöldunum er skipt á tvo gjalddaga, sá fyrri í janúar 2010 og sá seinni í janúar 2011. Við bendum fólki á að kanna með styrk frá stéttarfélögum sínum. Þá geta umsækjendur haft samband við Íslandsbanka sem veitir lán til flugtengds náms til allt að sjö ára.
Nánari upplýsingar og umsókn um nám







