Flýtilyklar
Verklegt nám - PPL Einkaflugmaður
| Heiti | Verklegt einkaflugmannsnám |
| Tilgangur og lýsing | Markmið námsins er að þjálfa flugnema til að fljúga örugglega og nákvæmlega samkvæmt sjónflugsreglum. |
| Lengd | 45 klst flugkennsla að lágmarki |
| Inntökukröfur | 16 ára aldur. Nægileg enskukunnátta til að skilja flughandbækur. Nemendur þurfa að hafa gilt 1. flokks eða 2. flokks heilbrigðisvottorð. |
| Námsgreinar |
|
| Námsgögn | Kennsluefni fyrir flugnemaskírteini, handbækur flugvéla. Kennsluáætlun fyrir einkaflugpróf og flugæfingar samkvæmt þjálfunarbók. |
| Kennslumat/kröfur | Nemendur eru metnir af flugkennara fyrir fyrsta einflug. Stöðugt endurmat á sér stað á meðan náminu stendur en þegar líður að lokum eru nemendur metnir og farið yfir öll helstu atriði færniprófs fyrir útgáfu einkaflugmannsskírteinis. |
| Réttindi | Nemendur öðlast rétt til að þreyta verklegt próf hjá Flugmálastjórn Íslands. |
| Upprifjun/endurnýjun | Vilji flugmenn rifja upp þekkingu sína og færni í flugi og undirbúa sig fyrir stöðupróf hjá Flugmálastjórn, þá eru hægt að bóka tíma með flugkennara sem útbýr áætlun í kjölfarið. |
Sólóprófið - Flugnemaréttindi
Flugnemar taka mikilvægt skref í átt að einkaflugmannsréttindum sínum þegar þeir fljúga fyrsta skipti einir síns liðs. Sá áfangi er kallaður sólóprófið og er einna eftirminnilegasti hluti flugnámsins.
Eftir að hafa náð að taka á loft og lenda einsamall, hefur flugneminn sannað hæfni sína og fær útgefið flugnemaskírteini. Þá heldur kennslan áfram og nemandinn flýgur bæði með kennara og æfir sig einn, samkvæmt námskránni.
Sólóprófið taka menn oftast eftir að 15-20 klst flugkennslu.
Á næstunni
15.09.2010






