Flýtilyklar
Einkaflugmaður
Frelsið er að finna í fluginu
Keilir býður nú í fyrsta skipti upp á flugnám í fjarnámi. Þannig nást fram markmið skólans að allir eigi að hafa aðgang að flugnámi, óháð búsetu.
Einkaflugmannsnám skiptist í bóklegt nám og verklegt nám. Bókleg námskeið eru kennd í lotum og fara fram í gegn um tölvu og internetið ásamt vinnulotum hjá Keili. Hægt er að hefja nám við upphaf hverrar lotu.
Bókleg PPL námskeið eru haldin reglulegaLeiðin að einkaflugmannsskírteininu (PPL Private Pilot Licence) sem veitir réttindi til að fljúga einkaflug við sjónflugsskilyrði með farþega hvert á land sem er án endurgjalds er eftirfarandi:
- Nemandi byrjar að safna flugtímum í verklegu námi (sjá nánar undir verklegu námi), eftir 10 -15 tíma tekur hann sólópróf.
- Bóklegt nám hefst í fjarnámi hjá Keili.
- Eftir sólópróf þarf flugnemi að taka frá 30 - 50 flugtíma í viðbót til þess að geta tekið verklegt próf.
- Bóklegu námi lýkur með prófi hjá Flugmálastjórn Íslands.
- Eftir að einkaflugmannsprófinu er náð fær flugneminn gefið út einkaflugmannsskírteini .
Inntökuskilyrði: Umsækjendur þurfa að hafa náð 16. ára aldri.
Þeir nemendur, sem ljúka einkaflugmannsnámi hjá Keili, geta fengið það metið til allt að 20 eininga til stúdentsprófs hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Keilir og Íslandsbanki hafa gert með sér samstarfssamning þar sem Íslandsbanki býður lán til nemenda Keilis í flugtengdu námi að ákveðnum forsendum uppfylltum. Lán þessi eru á sérstökum kjörum ætluð námsfólki á þessu sviði. Nánari upplýsingar um slík lán veitir Íslandsbanki í Reykjanesbæ.






