Flugakademían, nám í einkaflugi, atvinnuflugi og flugtengdum greinum - Keilir

Bóklega námið tekur tvær annir og er hluti af ATPL bóklega náminu sem er keyrt samhliða. Námið tekur mið af námsskrá sem gefin er út af JAA/EASA skv.

Atvinnuflugmaður

Bóklega námið tekur tvær annir og er hluti af ATPL bóklega náminu sem er keyrt samhliða. Námið tekur mið af námsskrá sem gefin er út af JAA/EASA skv. sam-evrópskri reglugerð um útgáfu flugskírteina. Bóklega CPL námið telur a.m.k. 200 klst. í kennslu ef það er haldið sér.

Þessi námskeið eru þó ekki oft haldin ein og sér, nema samofin í ATPL námskeið.

CPL námskeið geta verið stök (modular) þar sem verklegi og bóklegi hlutinn er aðskilinn. Þetta er venjan hér á landi. Einnig geta námskeiðin verið samtvinnuð (integrated) en þá haldast bóklegi og verklegi hlutinn saman. Slíkt nám er dýrara, enda erfiðara í framkvæmd og krefst mikils og góðs skipulags á kennslunni, þar sem allir þættir þurfa að vera ákveðnir með löngum fyrirvara. Slíkt hefur þó verið erfitt á Íslandi sökum veðráttu og framboði á kennurum en flestir eru þeir í annarri vinnu hjá íslenskum og erlendum flugrekendum.

Verklegi hlutinn tekur a.m.k. 25 klst.

CPL námskeið eru einnig gjarnan tvinnuð saman við blindflugsréttindanámskeið, IR (Instrument Rating).


Inntökuskilyrði

Umsækjendur skulu vera handhafar einkaflugmannsskírteinis með næturflugsáritun og þurfa að búa yfir nægilegri þekkingu í ensku, stærðfræði og eðlisfræði til að geta tileinkað sér námsefnið. Góð undirstaða í ensku er sérstaklega mikilvæg þar sem flest námsgögn eru á ensku. Stúdentspróf í ofantöldum greinum eru í flestum tilfellum tekin gild, en einnig geta umsækjendur gengist undir stöðupróf séu þeir ekki með stúdentspróf eða sambærilega menntun.

Inntökupróf eru í STÆ og ENS

Áherslur í STÆ: Almenn algebra (fullstytting brota, þáttun, lausn jafna o.s.frv.) · Rúmfræði · Hornaföll · Talnalínan (Náttúrulegar tölur, Ræðar tölur, Rauntölur) · Einföld diffrun og heildun · Rætur og veldi · Logaritmar · Jöfnuhneppi · Mengjafræði · Hlutfallsreikningur (prósentur) · Einfaldur líkindareikningur

Áherslur í ENS: Góður skilningur á ritmáli og leikni í að koma frá sér stuttum ritgerðum á ensku. Málfræði eða góð stafsetning er ekki skilyrði.

Bóklegt nám

Atvinnuflugmannsnám er kennt í fjarnámi og hefjast ný námskeið reglulega. Hægt er að skrá sig hérna


Verðskrá

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf