Flugakademían, nám í einkaflugi, atvinnuflugi og flugtengdum greinum - Keilir

Hjá Flugakademíu Keilis er boðið upp á metnaðarfullt flugnám auk fjölda flugtengdra námsgreina. Mikil áhersla er lögð á að auka aðgengi nemenda að

Námsframboð Flugakademíunnar

Hjá Flugakademíu Keilis er boðið upp á metnaðarfullt flugnám auk fjölda flugtengdra námsgreina. Mikil áhersla er lögð á að auka aðgengi nemenda að flugnámi en bóklegur hluti einkaflugnáms og atvinnuflugnáms er kenndur í fjarnámi sem er nýjung á Íslandi.

Flugakademía Keilis er opin íslenskum jafnt sem erlendum nemendum. Aðstaðan er góð en hjá skólanum er boðið upp á verklegar æfingar í fimm glænýjum kennsluvélum með nýjustu tækni frá Diamond flugvélaframleiðandanum (http://www.diamond-air.at/). Þar á meðal eru DA-40D og DA-42NG.

Nemendur Keilis ganga fyrir um nemendaíbúðir á Ásbrú.

Keilir hefur hlotið leyfi frá Flugmálastjórn Íslands til að stunda flugkennslu í eftirfarandi greinum:

  • Bóklegt og verklegt einkaflugmannsnám;
  • Bóklegt og verklegt atvinnuflugmannsnám;
  • Bóklegt og verklegt nám til blindflugsáritunar;
  • Upprifjunarnámskeið fyrir flugkennara;
  • Bóklegt og verklegt grunnnám flugumferðarstjóra;
  • Flugþjónustunám.

Nám í einkaflugi er fyrir þá sem vilja öðlast réttindi til að fljúga einshreyfils flugvél í flestum Evrópulöndum. Handhafar einkaflugmannsskírteina hafa kost á að fara í atvinnuflugmannsnám hjá Keili. Námið er skemmtilegt og krefjandi, og skipulagt þannig að hægt sé að stunda vinnu eða annað nám samhliða. Bóklegi hlutinn er kenndur í fjarnámi með staðbundnum vinnulotum hjá Keili. Verklegi hlutinn er kenndur hjá Keili á Keflavíkurflugvelli.



Nám í atvinnuflugi er spennandi nám fyrir þá sem vilja öðlast réttindi til að stjórna farþegaflugvélum hvar sem er í heiminum. Námið tekur mið af námsskrá sem er gefin út af JAA/ESA samkvæmt samevrópskri útgáfu flugskírteina. Þeir sem ljúka atvinnuflugmannsnámi hjá Keili öðlast öll þau réttindi sem flugfélög krefjast við ráðningu flugmanna á nútíma farþegaþotur.



Nám í flugumferðastjórn er ákaflega krefjandi og skemmtilegt, og undirbýr nemendur fyrir ábyrgðamikið starf flugumferðastjóra. Flugumferðastjórar starfa í flugturnum og flugstjórnarmiðstöðvum en starfið felur meðal annars í sér að sjá um samskipti við flugmenn og tryggja öryggi flugvéla.



Nám í flugþjónustu er afar lifandi og skemmtilegt og miðar að því að gera nemendur tilbúna til spennandi starfa í háloftunum víðsvegar um heiminn. Keilir er eini skólinn á Íslandi sem kennir flugþjónustunám til fullra réttinda. Flugfreyjur og flugþjónar sem ljúka námi hjá Keili geta því sótt um starf hjá hvaða flugfélagi sem er í heiminum.



Nám í flugrekstrarfræði er ætlað þeim sem vilja starfa við flugrekstur á ýmsum sviðum eða eru nú þegar starfandi við flugrekstur en vilja bæta þekkingu sína og styrkja sig í starfi. Diplóma nám í flugrekstrarfræði veitir mjög gott forskot á störf í flugiðnaðinum sem er í senn alþjóðlegur, spennandi og margbreytilegur.


Námsleiðir sem stefnt er að bjóða upp á á næstunni eru

Keilir stefnir að því að bjóða upp á nám í Flugvirkjun og Áhafnasamstarfi í framtíðinni. Ef þú hefur áhuga á að sækja slíkt nám, getur þú skráð þig á póstlista Flugakademíu Keilis eða haft samband við Kára Kárason, skólastjóra Flugakademíunnar.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf