
Keilir hyggst bjóða uppá flugkennslu á Ísafirði
Fulltrúar Flugakademíu Keilis kynntu nám í einkaflugi og atvinnuflugi á Ísafjarðarflugvelli á uppstigningadag. Kynningin var vel sótt
og gestir fengu að fara í kynnisflug á flaggskipi Flugakademíu Keilis.
Ljóst er að mikill áhugi er fyrir flugnámi á Vestfjörðum. Keilir býður uppá að nemendur geti stundað nám í einkaflugi
alfarið frá Vestfjörðum ef nægilega stór hópur næst. Bóklegi hlutinn er kenndur í gegnum fjarnám og verklegi hlutinn yrði
þá kenndur á Ísafirði á kennsluvélum frá Keili. Flugvélafloti Keilis er nýstárlegur og
hátækniflugvélar eru notaðar til kennslunnar. Vélarnar eru af gerðinni Diamond DA-20, DA-40 og DA-42, einar fullkomnustu kennslu- og einkaflugvélar
sem framleiddar eru í dag.
Ef þú komst ekki á kynninguna en hefur áhuga á að kynna þér þennan námskost þá bjóðum við
þér að hafa samband við Guðmund Sigurðsson, yfirkennara Flugakademíunnar á
gudmundur@keilir.net eða í síma 578-4062.
Allar upplýsingar um Flugakademíu Keilis og aðrar námsbrautir má finna á
hér.

Áhugasamir gestir um flugnám Keilis.

Keilir býður uppá einar fullkomnustu kennslu- og einkaflugvélar sem framleiddar eru í dag.