Nám í flugþjónustu er afar lifandi og skemmtilegt og miðar að því að gera nemendur tilbúna til spennandi starfa í háloftunum víðs vegar um heiminn. Nú þegar hafa útskrifaðir flugþjónustunemar Keilis verið ráðnir til starfa hjá flugfélögum bæði erlendis og hérlendis. Keilir kynnir nú flugþjónustunámið í fyrsta sinn kennt í kvöldskóla vegna mikillar eftirspurnar.
Grunnþjálfun flugfreyja og þjóna
Keilir hefur um árabil verið leiðandi í flugkennslu, bæði í fjarnámi og staðnámi. Keilir hefur ávallt að leiðarljósi að vera í broddi fylkingar í kennsluaðferðum og nýtir til þess nýjustu tækni. Í náminu fá nemendur aðgang að fullkomnu kennslukerfi skólans auk þess sem þeir hafa aðgang að færustu kennurum sem í boði eru, sem starfa hjá flestum flugrekendum landsins.
Skipulag náms
Námið fer fram í höfuðstöðvum Keilis að Ásbrú. Þar er að finna fyrsta flokks kennsluaðstöðu, mikið og fjölbreytt skólalíf og mötuneyti. Nemendur vinna námið saman í kennslustofu undir handleiðslu reyndra kennara og spennandi umhverfi þar sem staðsetning Keilis býður upp á fjölda tækifæra til heimsókna og skoðunarferða til fyrirtækja er starfa í umhverfi alþjóðaflugvallar.
Á námstímanum verður einnig boðið upp á fyrirlestra frá gestum úr hinum ýmsu geirum flugstarfseminnar. Einnig er reynt að tengja starfið með líflegum hætti við annað flugtengt nám hjá Flugakademíu Keilis, s.s. einka-, atvinnuflugmanns- og flugumferðarstjóranám.
Námstíminn er 9 vikur. Kennt frá 18:00 – 22:00, alla virka daga. Að auki er ein vinnuhelgi. Kennt laugardag og sunnudag frá 09:00 – 17:00.
Kennarar á flugþjónustubraut starfa á eftirfarandi aðilum:
- Icelandair
- Flugfélag Íslands
- Air Atlanta
- Cargolux
- Landhelgisgæsla Íslands
- Iceland Express og fleirum
Inntökuskilyrði
18 ára aldurstakmark og góð enskukunnátta
Námsgjöld
Námið kostar 195.000 krónur. Í samstarfi við Borgun býður Keilir uppá greiðsluskiptingu.
Innifalið í námsgjöldum eru:
- 9 vikur í kennslustofu
- 1 vinnuhelgi í björgunaræfingu með Landhelgisgæslu Íslands sem og björgun í sundlaug
- rafrænt námsefni (kennslubók seld sérstaklega)
- námsmat og stuðningur á námstíma
- aðgangur að Moodle kennslukerfi
Upptökupróf ekki innifalin í námsgjöldum.
Upplýsingar
Fyrir nánari upplýsingar um námið: flu@keilir.net